Mánudaginn 25. maí verður Stelpugolf haldið á vegum PGA á Íslandi á svæði GKG við Vífilsstaði. Stelpugolf var haldið í fyrsta sinn vorið 2014 og tókst afar vel til og vonandi verður Stelpugolf árlegur viðburður.

Frí golfkennsla verður fyrir konur á öllum aldri. Hægt verður að koma hvenær sem er á milli klukkan 10 og 13.

Settar verða upp 5 stöðvar þar sem kennsla verður í hinum ýmsu þáttum leiksins hjá færum PGA golfkennurum. Það er engin nauðsyn að vera allan tímann og vel mögulegt að koma í styttri tíma sem og lengri.

Hvetjum allar konur til þess að taka daginn frá og skella sér í golfkennslu hjá PGA golfkennurum.

Hlökkum til að sjá ykkur!

Hvetjum ykkur til að fylgjast með Stelpugolfi á Facebook með því að smella hér.