Kæru félagsmenn
Enn blásum við til innanfélagsmóts Trackman golfhermunum. Í þetta sinn verða 9 holur leiknar í Harbour Town, sem notaður er í PGA mótaröðinni, í sól og 20 stiga hita og til viðbótar, fyrir þá sem vilja, verða 3×12 holur púttaðar þar sem besti hringurinn gildir.
Helstu upplýsingar:
Hermarnir: Í boði eru 36 pláss, fyrstir koma fyrstir fá og miðast það við greiðslu þátttökugjaldsins kr. 2.500
- Leiknar verða 9 holur, þ.e. holur 10-18 á Harbour Town, þrír í holli.
- Leiktími er hámark 1 klst og 20 mínútur. Ef ekki næst að klára 9 holur á þeim tíma, þá gildir punktafjöldinn þegar leikur er stöðvaður.
- Karlar leika á “amateur” teigum (2842 m), konur á fremstu teigum “ladies” (2666 m)
- Keppnisfyrirkomulag er punktakeppni með grunnforgjöf leikmanns, hámark 36.
- Hægt er að velja um (meðan pláss leyfir) um eftirfarandi rástíma: Kl. 17:00; kl. 18:30; kl. 20:00.
- Mótinu lýkur því kl. 21:30 og verður verðlaunaafhending í kjölfarið.
- Mótsgjald er kr. 2.500kr. Innifalið í verðinu er herma- og pútthlutinn (valfrjálst)
- Hámarks fjöldi þátttakenda er 36 keppendur (fyrstir koma fyrstir fá og miðast það við greiðslu þátttökugjaldsins).
- Verðlaun eru veitt fyrir þrjú efstu sætin í punktakeppni með forgjöf.
- 1. sæti: Kennsla í Trackman 30 mín m. PGA kennara og glaðningur frá Ölgerðinni
- 2. sæti: 2×30 mín í Trackman golfhermi og glaðningur frá Ölgerðinni
- 3. sæti: 1×30 mín í Trackman golfhermi og glaðningur frá Ölgerðinni
- Ef tveir eða fleiri eru jafnir í verðlaunasæti er varpað hlutkesti.
Slóð á heimasíðu vallarins: https://e6golf.com/golf-courses/harbour-town-golf-links/
Pútthlutinn: Fyrir keppendur í hermamótinu (innifalið í hermagjaldinu) eða þau sem vilja eingöngu taka pútthlutann (gjald kr. 1.000).
- Leiknar verða 3×12 holur, þar sem besti hringurinn gildir.
- Hægt að klára pútthringina áður en leikur hefst í hermunum, og/eða pútta eftir að leik lýkur í hermamótinu (fyrir kl. 21:30).
- Það er aðeins eitt verðlaunasæti, fyrir þann sem fer hringinn á fæstu höggunum, án forgjafar.
- Ef tveir eða fleiri eru jafnir í verðlaunasætinu þá ræður hlutkesti.
- Glaðningur verður veittur fyrir verðlaunahafa þessa hluta mótsins.
Skráning fer fram með því að senda tölvupóst á , proshop@gkg.is eða í golfverslun GKG í síma 570 7373. Athugið að staðfesting þátttöku miðast við greiðslu þátttökugjaldsins á reikning GKG sem er 318-26-176, 650394-2089.
Styttum veturinn í skemmtilegu golfi í TrackMan !
Viðburðanefnd GKG