Þorrablót GKG 2020
Þorrablót GKG verður haldið laugardaginn 8. febrúar. og hefst kl. 19:00 með fordrykk.
- Veislustjóri: Gerða okkar hin eina sanna
- Magnús Harðar, ræsir og píanósnillingur gefur tóninn í upphafi kvölds.
- Söngfuglar GKG leiða þorrasönginnn undir stjórn Elísabetar Harðar.
- Hinir eiturhressu Hrafnar brillera eins og þeim einum er lagið.
- Saga Garðars mætir með uppistand.
- Dj Fox toppar kvöldið með dúndrandi dansleik fram á nótt.
Maturinn verður í góðum höndum hjá þeim Vigga og co í Mulligan, Hrútspungar – Sviðasulta – Svínasulta- Lundabaggar – bringukollar -lifrarpylsa og blóðmör – Þorra “konfekt” Hákarl – Harðfiskur – tvær tegundir af síld, Kjöt kalt Hangikjöt – Sviðasulta – Meðlæti Rúgbrauð – Flatbrauð – Smjör, grænar baunir og rauðkál – Heitt kjöt og heitt meðlæti Sviðakjammi ( nýsoðnir volgir) , saltkjöt á beini , Rófustappa, kartöflur í uppstúfi og lambasteik.
Verð á miða kr. 8.900,-.
Pantanir sendist á vignir@gkg.is