Vallarstjóri hefur í samráði við vallarnefnd ákveðið að opna Vífilsstaðarvöll laugardaginn 11. maí klukkan 8:00.
Reynt verður að opna allann völlinn þar að segja leirdalsvöll og mýrina. Kylfingar eru beðnir að ganga vel um völlinn og sína svæðinu virðingu þar sem það er viðkvæmt, muna að ganga frá kylfuförum og laga boltaför.

Vinnudagur verður föstudaginn 10 maí frá klukkan 16 til 19:00. Fólk er beðið að mæta við áhaldahús GKG. Við endum vinnudaginn svo með pylsupartýi við áhaldahúsið kl 19:00.
Helsta verkefni dagsins er að hreinsa rusl af vallarsvæðinu.