Kæru félagar,
Í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu munum við loka eftirfarandi starfsemi hjá okkur næstu tvær vikurnar:
- Skipulagðri íþróttastarfsemi
- Golfhermum GKG
- Verslun GKG
- Útiæfingasvæði
- Salernisaðstöðu á 12. braut
Völlurinn verður áfram opinn fyrir félagsmenn. Varðandi þann þátt, þá bendum við á tilmæli sóttvarnarlæknis um að hópar séu ekki að koma saman.
Með þessum hætti er brugðist við tilmælum þríeykisins, enda lykilatriði núna að allir taki þátt í að grípa hratt inní málin til að stöðva útbreiðslu veirunnar.
Baráttukveðjur,
Starfsfólk GKG