Á morgun, þriðjudaginn 20. október opnum við vellina okkar aftur, efri hluti Leirdalsvallar verður þó lokaður. Við spilum því tvær 9 hollu lykkjur, Mýrina  og á Leirdalsvelli spilum við holur 1 til 3 og 13 til 18.

Þar sem það er spáð næturfrosti getum við ekki opnað fyrr en klukkan 11:00 á morgun þriðjudag, aðra morgna opnum við kl. 10:00.

Athugið, flatirnar eru mjög viðkvæmar, passið því upp á það að laga öll kylfuför, bæði ykkar sem og önnur sem þið sjáið á flötum.

Golhermar GKG verða jafnframt opnaðir, til að tryggja það að einstaklingar geti haldið tveggja metra reglunni er ekki heimilt að vera fleiri en tveir um hvern hermi.

Með bestu kveðjum

Starfsfólk GKG