Konur í GKG

18 holu punktamótmót fyrir konur í GKG  verður þriðjudaginn 19. júlí nk. Spilaður verður Leirdalurinn og er hámarksforgjöf, þ.e. leikforgjöf 40. Skráning fer fram á golf.is. Mótsgjald er kr. 1.500 og greiðist við upphaf móts með peningum eða með því að leggja inn á reikning kvennanefndar 1135-05-423727, kt. 220550-3979. Verðlaun veitt fyrir efstu sæti, nándarverðlaun á 2., 4., 11. og 17 holu (verður að vera á flöt) og fyrir lengsta upphafshögg á 1. braut (verður að vera á braut).

Golfkveðjur

Kvennanefndin.