24,6% kylfinga finnst 7. brautin erfiðasta brautin á Vífilsstaðavelli. 7. brautin er 371 metri að lengd af gulum teig. Kylfingar hafa val um að reyna að slá yfir vötnin, en til þess þarf um 210 metra boltaflug. Að öðrum kosti er ansi langt annað högg eftir inn á flötina ef kylfingar kjósa að fara öruggu leiðina.
Í öðru sæti varð 3. brautin með 20,7% atkvæða þá 15. brautin sem nú hefur reyndar verið breytt með 20,2%, 16. braut 17,2% og 6. braut með 7,4%. Aðrar brautir fengu minna. Að neðan má sjá hvernig kylfingar röðuðu brautunum.
Ný skoðanakönnun hefur nú verið sett af stað þar sem kannað er hvern af vinavöllum okkar frá síðasta ári kylfingar léku mest
.