Í kvennaflokki spilaði Ragnheiður H Ragnarsdóttir sinn besta hring og skaust þar með í fyrsta sætið með 108 punkta samtals úr þremur bestu umferðunum. Í öðru sæti er Helga Þorvaldsdóttir með 106 punkta. Jafnar í 3.-5 sæti eru svo Ingunn Einarsdóttir, Ingunn Gunnarsdóttir og Þuríður Stefánsdóttir með 101 punkt. Nokkrar aðrar eru með mjög góðar tvær umferðir og gætu því hæglega skotist í toppbaráttuna með áframhaldandi þátttöku.
Í karlaflokki hélt Helgi Bjarni Birgisson forystunni með 114 punktum. Jónas Þór Gunnarsson hélt sömuleiðis 2. sæti með 113 punktum. Fast á hæla þeirra kom Guðni Þorsteinn Guðjónsson með 112 punkta og fast á eftir honum komu 5 aðrir kylfingar með 109-111 punkta. All stór hópur er með tvær mjög góðar umferðir af þremur og gæti hver sem er úr þeim hópi skotist í toppbaráttuna með áframhaldandi þátttöku.
Stöðuna má nálgast hér