Íslandsmót golfklúbba í flokki öldunga fór fram núna um helgina. Keppni í 1. deild kvenna fór fram á Akureyri þar sem GK fagnaði gullinu eftir sigur gegn GR í úrslitaleiknum, 3,5-1,5. GKG náði svo þriðja sætinu eftir sigur gegn heimakonum í GA í leik um þriðja sætið. Lið GKG var skipað þeim  Ásgerði Gísladóttur, Baldvinu Snælaugsdóttur, Elísabetu Böðvarsdóttur, Hönnu Báru Guðjónsdóttur, Jóhönnu Ríkey Sigurðardóttur, Lindu Arilíusdóttur, Maríu Guðnadóttur sem jafnframt var liðsstjóri og Ragnheiði Sigurðardóttur, 

Óskum við þeim innilega til hamingju með árangurinn.