Lýsum haustmyrkrið upp með leiftrandi golfi
Fimmtudaginn 13. september 2017 kl 18:00
Nú endurtökum við ljósamótið sem við blésum til í fyrra nema að nú spilum við átján holur þar sem við byrjum í björtu og færum okkur svo yfir í sjálflýsandi bolta, holur og leikmenn þegar rökkrið tekur yfir og leikum inn í myrkrið. Engum verður kalt því Vignir vert og co í Mulligan verða á kantinum með eitthvað heitt og bragðgott í kroppinn.
Mótið er fjögurra manna betri bolti, punktamót með forgjöf. Veitt verða verðlaun fyrir þau lið sem verða í tveimur efstu sætunum auk þess sem veitt verða verðlaun fyrir þá sem verða næstir holu í upphafshöggum á par 3 holum. Að auki verða veitt verðlaun fyrir þann sem er næstur holu í öðru höggi á 18. braut í Leirdal.
Verði tvö lið jöfn í sæti, þá gilda seinni 9 holurnar, þá 6, 3, 1. Séu liðin ennþá jöfn skal varpa hlutkesti.
Ræst verður út á öllum teigum samtímis kl. 18:00 stundvíslega. Mótið er 18 holur þar sem gamli Vífilstaðahringurinn verður leikinn, það er öll Mýrin og 1.-3. og 13.-18 á Leirdal.
Skráning fer fram á golf.is. Ekki þarf að safna saman í fjögurra manna holl heldur er nóg að skrá sig á rástíma. Þeir sem eru saman á rástíma spila saman í liði.
Verð er kr. 5.900,- innifalið í mótsgjaldi er smáréttadiskur A La Viggi eftir mót, þrír sjálflýsandi boltar, lýsing á leikmenn og heitt kakó út á velli. Hægt verður að kaupa fleiri sjálflýsandi bolta.
Opna sviðið verði galopið yfir snæðingnum eftir mót fyrir alla þá sem vilja skemmta sjálfum sér og öðrum.