Argentínumenn eru klárlega konungar rifauga steikurinnar (e ribeye steak) … við Íslendingar eigum hins vegar leynivopn sem allt of fáir Argentínumenn hafa fengið að upplifa … það er hægeldaða nauta rifauga steikin hans Vigga verts.
Nú fá hins vegar allir GKG-ingar, vinir þeirra, vinnufélagar og fjölskyldumeðlimir tækifæri til að upplifa þessa eðalsteik næstkomandi föstudagshádegi eða þann 5. apríl.
Viggi býður uppá:
- Hægelduð nauta ribeye steik
- Ofnbakaðar kartöflur
- steikt grænmeti
- portvínsgljái og bernaise sósa
Verð kr. 2.500,-
Því ekki að panta borð á vignir@gkg.is.
Með GKG kveðjum,
Rifaugasteikarnefnd GKG