Íslenskt lambakjöt er hollara en lambakjöt frá öðrum Evrópulöndum og fær einnig hærri einkunn fyrir bragðgæði. Það sama á við um íslensku Bernaise sósuna. Svo er hægt að gera best betra og þar kemur Viggi vert til sögunnar.
Föstudagshádegið 10. maí fá GKG-ingar, vinir þeirra, vinnufélagar og fjölskyldumeðlimir tækifæri til að upplifa það hvernig best verður betra.
Viggi býður upp á:
- Grillsteikt og hægeldað kryddlegið lambalæri
- ofnbakaðar kartöflur
- Steikt grænmeti
- lambagljáa
- Alíslenska bernaise sósu ala Viggi Hlö ®
Verð kr. 2.500,-
Því ekki að panta borð á vignir@gkg.is.
Með GKG kveðjum,
Bestunarnefnd GKG