Þær voru gríðarlega erfiðar aðstæðurnar á öðrum degi Íslandsmóts Unglinga, brjálað rok, völlurinn þurr og flatirnar hraðar. Það breytti því ekki að GR-ingurinn Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir spilaði frábært golf, sérstaklega á seinni níu holunum.
Á þrettándu holu voru aðstæður þannig að stífur hliðar mótvindur gerði kylfingum erfitt fyrir auk þess sem holustaðsetningin vægast sagt krefjandi. Á þessum degi var meðalskorið á holunni 4,29 högg, næst erfiðasta hola vallarins. Jóanna Lea mældi 128 metra í pinna, sló með sjö járni hið fullkomna golfhögg og fór holu í höggi.
Við óskum þessum efnilega kylfing innilega til hamingju með þann árangur auk Íslandsmeistaratitilsins sem hún landaði daginn eftir eftir harða og spennandi baráttu.