Golfhermar GKG – reglur vegna Covid-19

Reglur vegna notkunar golfherma 

Í ljósi reglna um samkomubann, gilda eftirfarandi reglur á inni-æfingasvæði GKG í Íþróttamiðstöðinni, þangað til annað verður kynnt.

  • Þeir sem eru að mæta í tíma bíða á efri hæðinni þar til hermir er laus
  • Ekki mega fleiri en 20 aðilar vera á neðri hæðinni samtímis, það sama á við um efri hæðina. Yngri en 18 ára er óheimilaður aðgangur að Íþróttamiðstöðinni nema viðkomandi sé í hermi með forráðamanni. 
  • Starfmaður í ProShop sótthreinsar skjá, tí, stól og borð fyrir hvern tíma.
  • Ekki mega fleiri en tveir vera saman í hverjum hermi og passað skal upp á tveggja metra regluna.
  • Hermar 6 og 8 er lokaðir (hermarnir frammi).
  • Einn stóll er við hvern hermi og bannað er að sækja fleiri.
  • Ef tveir eru saman í hermi þá má bara annar aðilinn sjá um stillingar á skjá.
  • Eftir tíma fara viðkomandi út um neðri hæðina
  • Við fylgjum þessum reglum mjög fast eftir, ef einhver fer ekki eftir tilmælum þá vísum við viðkomandi aðilum úr húsi.
  • Kórinn er lokaður.

Svo allt gangi sem best óskum við eftir samstarfi og skilningi þínum á mikilvægi þessara aðgerða.

  • Við minnum á mikilvægi handþvottar til að forðast smit. Hreinlætisaðstaða er inni í búningsherbergjum á neðri hæðinni hjá æfingasvæðinni.
  • Munið að þvo hendur vel með sápu fyrir og eftir leik.
  • Haldið 2 metra bili milli iðkenda.
  • Ekki skiptast á golfkylfum og boltum.
  • Ekki skiptast á tíum.
  • Handspritt er á mörgum stöðum í húsinu en virka ekki jafn vel og handþvotturinn. 

 

Með bestu kveðjum
Starfsfólk GKG

By |24.04.2020|Categories: Fréttir|

Share This Story, Choose Your Platform!

Go to Top