Þá er stóra stundin að renna upp hjá okkur og opna vellina okkar, Leirdalsvöll og Mýrina.
Eins og tilkynnt var á fésbókarsíðu GKG fyrir helgi þá opna vellirnir á morgun þriðjudag 12.05 kl. 12:05. Skráning á rástíma er á Golfbox og er hægt að skrá sig 4 daga fram í tímann frá kl. 21 hvert kvöld. Það er kl. 21 í kvöld mánudag er hægt að skrá sig á rástíma allt fram á föstudag.
Kylfingar sem fara út að spila munu taka eftir töluverðum breytingum enda hafa vallarstarfsmenn unnið frábært starf í vetur að fegra t.d. umhverfi teiga, grisja trjágróður og margt fleira. Flatirnar koma vel undan vetri en frostið fór seint úr brautum og má búast við að þær þurfi meiri tíma til að verða sléttari.
Völlurinn er viðkvæmur eins og alltaf á þessum árstíma þegar grasspretta er ekki komin í fullt gang. Viljum við því biðja ykkur um að ganga vel um völlinn okkar og muna eftir að setja torfur í kylfuför, líta eftir og gera við öll boltaför á flötum.
Nýjir félagsmenn geta sótt félagsskirteini sín í Golfverslun GKG og gilda þau ár frá ári meðan félagsaðild er í gildi. Endurnýjun ef skirteini glatast kostar kr. 1.500. Sjá opnunartíma hér.
Þau sem keyptu ótakmarkað boltakort á útiæfingasvæðið geta sótt það í golfverslunina en búið er að opna æfingasvæðið.
Helstu staðarreglur (ítarlegar staðarreglur verða kynntar fyrir Opnunarmót GKG n.k. laugardag:
Leyfðar eru færslur um kylfulengd á snöggslegnu svæði, og púttershaus á flötum, ekki nær holu.
Vegna Covid 19 gilda eftirfarandi sérreglur:
Leyfðar eru færslur um kylfulengd á snöggslegnu svæði, og púttershaus á flötum, ekki nær holu.
Vegna Covid 19 gilda eftirfarandi sérreglur:
Flaggstöng (Covid-19 frávik)
Óheimilt er að snerta flaggstöngina eða fjarlægja hana úr holunni. Ef flaggstöngin er snert fyrir slysni er það vítalaust.
Bolti í holu (Covid-19 frávik)
Við þær aðstæður þar sem holan er fóðruð að innan, t.d. með svamphólk, og boltinn er í holunni, en ekki allur undir yfirborði flatarinnar þá er hann í holu. Meiri líkur en minni eru að hann hvíli upp við flaggstöngina og þá gildir regla 13.2c.
Bætt lega í glompu, færa um lengd kylfugrips (Covid-19 frávik)
Þar sem hrífur hafa verið fjarlægðar úr glompu og ástand hennar er mjög ójafnt þá má leikmaður taka vítalausa lausn einu sinni áður en höggið er slegið, með því að leggja upphaflega boltann innan lausnarsvæðis og leika honum þaðan.
o Viðmiðunarstaður: Staðurinn þar sem boltinn liggur (sjá reglu 14.1)
o Stærð lausnarsvæðis, mæld frá viðmiðunarstað: lengd kylfugrips (ekki pútter) frá viðmiðunarstað, en með eftirfarandi takmörkunum:
o Takmörk á staðsetningu lausnarsvæðis
Það má ekki vera nær holunni en viðmiðunarstaðurinn, og
Það verður að vera í glompunni.
o Ekki er leyfilegt að slétta lausnarsvæðið áður en boltinn er lagður.
Þegar farið er eftir þessari staðarreglu verður leikmaðurinn að velja stað til að leggja boltann og fara eftir aðferðum við að leggja bolta aftur samkvæmt reglu 14.2b(2) og 14.2e.
Við viljum biðja leikmenn um að grófjafna sandinn eftir að hafa slegið, en það er hægt að gera með fótunum.
Víti fyrir að leika bolta á röngum stað í bága við staðarregluna: Almennt víti samkvæmt reglu 14.7a.
Víti fyrir brot á staðarreglu: Almennt víti (Höggleikur – tvö högg, Holukeppni – holutap)
Að öðru leyti skal leika eftir reglum “Rules of golf as approved by R&A Rules Limited and The United states Golf Association”
Góða skemmtun og njótum þess að leika saman í sumar!