Það er komið að því aftur … ekki í fyrsta skiptið (eðlilega) … og ekki síðasta skiptið heldur … að Viggi vert velti kótilettunum upp úr MS smjörinu.

Viggi ætlar að bjóða okkur upp á herlegheitin í hádeginu föstudaginn 22. maí sem samanstendur af fyrrnefndum smjörsteiktu kótilettum, ofnbökuðum kartöflum, kremaðri sveppasósu og íslensku eðalgrænmeti.

Þetta er einstakt tækfæri sem allir GKG-ingar grípa fegins hendi og bjóða með sér vinum, vinnufélögum og/eða fjöldskyldu … tilvalið tækifæri til að t.d. styrkja böndin við fjarskylda ættingja.

Verð kr. 2.500,-

ALLIR verða að panta borð fyrirfram með því að senda póst á vignir@gkg.is og er valmöguleikinn  kl. 11:30, 12:10 og 12:50.

Kótilettunefnd GKG