Danirnir telja sig vera meistara purusteikurinnar en það er bara út af því að þeir vita ekki af Vigga vert í Mulligan.
Nú höldum við GKG-ingar áfram að bjóða vinum, vandamönnum og/eða vinnufélögum í föstudagshádegi GKG þann 29. maí næskomandi.
Viggi býður uppá:
- Grísapurusteik með rjómasósu
- Ofnbakaðri kartöflu– bökuðu grænmeti
- Tilheyrandi meðlæti rauðkál – lauksulta – eplasalat
Verð kr. 2.500,-
Endilega panta borð með því að senda línu á vignir@gkg.is.
Með GKG kveðjum,
Purusteikarnefnd GKG