Hann Valur Þórarinsson gerði sér lítið fyrir og fór holu í höggi á 4. Holu á Mýrinni. Valur sem tekur þátt í 70+ flokknum sló nett högg með 3 tré, boltinn fór í fallegum sveig frá vinstri til hægri, lenti í flatarkanti og rúllaði með jöfnum hraða í miðja holu.

Valur spilaði vel í mótinu og endaði í öðru sæti í sínum flokki.

Við óskum Val innilega til hamingju með að vera kominn í Einherjaklúbbinn!