Í dag er 7. og lokadagur meistaramótsins og í kvöld krýnum við Klúbbmeistara GKG 2020. Nú er tækifærið til að koma á völlinn og sjá bestu kylfinga landsins etja kapp sín á milli og við Leirdalsvöllinn.

  • Meistaraflokkur kvenna ræsir út á bilinu 10:30 til 11:00 og kemur í hús milli kl. 15:00 og 15:30
  • Meistaraflokkur karla ræsir út á bilinu  11:10 til 13:00 og kemur í hús milli kl. 15:40 og 17:30

Í meistaraflokki karla er allt í járnum fyrir lokahringinn. Hlynur Bergsson leiðir keppnina á fimm höggum undir pari. Þeir Ólafur Björn Loftsson og Aron Snær Júlíusson fylgja fast á hæla Hlyns, jafnir í öðru sæti, á fjórum höggum undir pari. Sjá annars stöður efstu manna hér á eftir:

Í Meistaraflokki kvenna er Hulda Clara Gestsdóttir með nokkuð afgerandi forystu á 13 höggum yfir pari. Baráttan um annað sætið er hins vegar í járnum fyrir lokadaginn. Ingunn Gunnarsdóttir er á 21 höggi yfir pari, tveimur höggum á eftir er nafna hennar Einarsdóttir og fast á hæla þeirra eru þær Árný Eik, María Björk og Anna Júlía. Sjá annars stöðu efstu kvenna hér á eftir: