Opnunarmót GKG 2021 – laugardaginn 15. maí
Boli -Opnunarmót GKG fór fram við kjöraðstæður laugardaginn 15. maí. Veðrið var með besta mót, völlurinn frábær og umfram allt GKG andinn sveif yfir vötnum.
Í kvennaflokki sigraði Sigríður Geirsdóttir punktakeppnina á 45 punktum, Katrín Hörn var í öðru sæti á 44 punktum og í þriðja sæti var Ragnheiður H. Ragnarsdóttir. Katrín Hörn, sem er 17 ára gömul gerði sér lítið fyrir og vann höggleikinn á 77 höggum, tveimur höggum betri en reynsluboltinn María Málfríður, sem spilaði völlinn á 79 höggum. Katrín lét ekki þar við látið heldur krækti sér í nándarverðlaun á 11. holu, var eingöngu 71 cm frá holunni auk þess að vera í öðru sæti í punktakeppninni, glæsilegur árangur hjá þessum efnilega kylfingi.
Í karlaflokki sigraði Brjánn Árnason punktakeppnina á 43 punktum, Magnús Gautur Gíslason var í öðru sæti á 42 puntum og Bjarki Már Magnússon var á 40 punktum. Magnús Gautur vann jafnframt höggleikinn á 73 höggum.
Óskum við öllum vinningshöfum til hamingju en hér að neðan eru verðlaunahafar listaðir upp:
Punktakeppni með forgjöf.
Verðlaun:
- Sæti: Gisting í tveggja manna herbergi með morgunverði í eina nótt á Íslandshóteli að eigin vali. Gjafabréf í Skylagoon fyrir tvo. Glaðningur frá Ölgerðinni
- Sæti: Gisting í tveggja manna herbergi með morgunverði í eina nótt á Íslandshóteli að eigin vali. Glaðningur frá Ölgerðinni
- Sæti: – Gjafabréf í Skylagoon fyrir tvo. Glaðningur frá Ölgerðinni. Gjafabréf í Golfherma GKG
Konur:
- Sigríður Geirsdóttir 45 punktar
- Katrín Hörn Daníelsdóttir 44 punktar
- Ragnheiður H Ragnarsdóttir 42 punktar
Karlar:
- Brjánn Árnason 43 punktar
- Magnús Gautur Gíslason 42 punktar
- Bjarki Már Magnússon 40 punktar
Höggleikur
Verðlaun:
- Sæti: 30 þúsund króna inneign hjá GKG, 10 þúsund króna gjafabréf í Matarkjallarann, 10 þúsund króna inneign hjá Olís
Karlar:
- Sæti: Magnús Gautur Gíslason 73 högg
Konur:
- Sæti: Katrín Hörn Daníelsdóttir 77 högg
„Iss ég para bara næstu“ verðlaunin: Jón Þór Friðgeirsson
Nándarverðlaun veitt á öllum par 3 holum vallarins.
Hola 17: gjafabréf í goflherma GKG og glaðningur frá Ölgerðinni
Nafn kylfings: Hallgrímur Smári, 45.5cm
Hola 13: gjafabréf í goflherma GKG og glaðningur frá Ölgerðinni
Nafn kylfings: Jón Gunnarsson, 1,11m
Hola 11: Gjafabréf í Skylagoon fyrir 2 og glaðningur frá Ölgerðinni
Nafn kylfings: Katrín Hörn, 71cm
Hola 9: Gjafabréf í Skylagoon fyrir 2 og glaðningur frá Ölgerðinni
Nafn kylfings: Eysteinn Marvinsson, 2,12m
Hola 4: Gjafabréf í Skylagoon fyrir 2 og glaðningur frá Ölgerðinni
Nafn kylfings: Jóhanna Hjartardóttir, 2,47m
Hola 2: Gjafabréf í Skylagoon fyrir 2 og glaðningur frá Ölgerðinni
Nafn Kylfings: Jóhanna Ríkey, 1,38 m
Lengsta upphafshögg á 12:
Kristófer Eyleifsson og Dagur Þórhallsson (sama lengd og í sama holli)
Næstur á tveimur á 18.
Sigurður Kristinn Egilsson … á tveimur, þ.e. 0 cm frá holu