Aðalfundur GKG fyrir starfsárið 2021
Aðalfundur GKG verður haldinn þriðjudaginn 30. nóvember kl 20:00.
Dagskrá fundarins er með eftirfarandi hætti.
- Fundarstjóri og fundarritari kosnir.
- Skýrsla stjórnar um störf og framkvæmdir á liðnu starfsári.
- Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til samþykkis.
- Rekstrar- og fjárfestingaáætlun komandi starfsárs kynnt.
- Lagabreytingar og aðrar tillögur skv. 8. gr. teknar til afgreiðslu.
- Kosning formanns til eins árs.
- Kosning fjögurra meðstjórnenda til tveggja ára
- Kosning endurskoðanda eða endurskoðendafélags.
- Önnur mál.
Tillaga að lagabreytingu:
- Eftirfarandi texti í 8. grein er í dag:
- „Aðalfund og aðra félagsfundi skal auglýsa með minnst viku fyrirvara.“
- Verður:
- „Aðalfund skal auglýsa með minnst tveggja vikna fyrirvara en aðra félagsfundi með minnst viku fyrirvara“
Við vekjum athygli á því að samkvæmt lögum klúbbsins þurfa framboð til stjórnar að berast á skrifstofu klúbbsins ekki siðar en viku fyrir aðalfund.
Stjórn GKG