Birgir Leifur stóð sig vel í dag á Open Mahou de Madrid mótinu sem fram fór á Spáni. Birgir Leifur endaði hringinn á 3 höggum undir pari eftir að hafa verið 1 höggi yfir pari eftir fyrri 9 holurnar, en hann byrjaði á 10 teig.

Birgir er því í ágætismálum í 19. – 37. sæti eftir fyrsta dag. Birgir fékk 2 skolla, 11 pör, og 5 fugla á hringnum í dag.