Birgir Leifur lauk leik á Áskorendamótaröðinni í dag í 16.-19. sæti sem verður að teljast ágætis árangur miðað við mótin sem á undan hafa verið.

Birgir var í efsta sæti framan af degi en fékk leiðinda endi þegar hann fékk 4 skolla á síðustu brautunum. Birgir Leifur endaði á 68-69-67-72=276 höggum sem eru -8 högg undir pari. Han fékk fyrir vikið € 1.740,- sem eru um 160 þús. krónur.