Birgir Leifur átti ágætis leikdag í dag að undanskildum skramba á 14. holu. Hann endaði hringinn á -1 höggi undir pari og er sem stendur í 12. – 20. sæti fyrir lokahringinn.
Birgir Leifur á rástíma klukkan 11:11 á morgun og er að spila með Mikko Ilonen fráFinnlandi sem er á sama höggafjölda og Birgir Leifur en er í 68. sæti á styrkleikalista Áskorendamótaraðarinnar.