Birgir Leifur hefur lokið 9 holum á Ecco mótinu í Óðinsvéum í Danmörku í dag. Hann er sem stendur á -10 höggum undir pari í 10. – 18. sæti, einungis 4 höggum frá fyrsta sætinu.

Birgir hefur verið að spila nokkuð stöðugt og hefur t.a.m. fengið 14 fugla en einungis 3 skolla á þessum 45 holum. Við óskum Birgi Leifi áframhaldandi góðs gengis.