Birgir Leifur er í 4. – 10. sæti að loknum 3 leikdögum á Ecco mótinu í Danmörku. Fyrir lokadaginn er hann því einungis 3 höggum frá efsta manni sem er heimamaðurinn Thomas Norret á -14 höggum undir pari.
 Birgir lék á 67 höggum í dag. Fékk 5 fugla, 11 pör og 2 skolla. Hann hefur leikið á 66+66+67 og er -11 höggum undir pari vallarins fyrir lokadaginn á morgun sunnudag.