Nú hefur leik enn á ný verið frestað í Frakklandi á Open Des Volcans mótinu sem er 5. síðasta mótið á Áskorendamótaröðinni þetta árið. Ástæðan er sú að ekki náðist að klára leik fyrir myrkur og var því afráðið að fresta leik til morguns.
Birgir Leifur á 3 holur eftir af 3. hring og er á +1 yfir pari í dag og samtals á -1 höggi undir pari fyrir morgundaginn. 3 umferðin verður kláruð í fyrramálið áður en raðað verður niður í 4. og síðasta hringinn eftir hádegi.