Birgir Leifur gerði sér lítið fyrir og setti niður örn á 5. holunni og tryggði sig þar með í gegn um niðurskurðinn. 5. brautin er 501. metra löng par 5 braut og var því 14. holan sem Birgir lék á hringnum í dag. Efsti maður er Peter Whiteford frá Windygates í Skotlandi á -8 höggum undir pari, en hann er í 94 sæti á styrkleikalista Áskorendamótaraðarinnar.