Birgir Leifur er nú á +1 höggi yfir pari eftir 3 hring á Golf Open International de Toulouse í Frakklandi. Hann átti fremur slakan hring í dag þegar hann lék á +3 höggum yfir pari, fékk 3 fugla, 3 skolla, 11 pör og fékk síðan tvöfalt par á 15 holuna eða 6 högg.

Fyrir morgundaginn er Birgir í 56.- 59. sæti. Hann á rástíma á morgun klukkan 8:45 í fyrramálið, en þá hefst lokahringurinn og því tækifæri á að færa sig upp töfluna.