Birgir Leifur endaði illa á Golf Open International de Toulouse í Frakklandi. Birgir endaði í 59.-62. sæti og hlaut fyrir það um 30.000 kr. Birgir Leifur átti slakasta hringinn sinn lokadaginn þegar hann lék á +5 höggum yfir pari, fékk 3 fugla, 6 skolla, 8 pör og 1 tvöfaldan skolla.