Birgir Leifur lék á -2 höggum undir pari í dag á 2. stigi úrtökumótsins á Sherry Golf á Spáni. Hann er staddur í 16. sæti af 83 keppendum

 Birgir fékk 4 skolla, 8 pör og 6 fugla á hringnum. Í samtali GKG sagðist Birgir hafa verið að pútta vel og verið vel stemdur í dag. Hann fékk 2 víti á hringnum þr´ðatt fyrir að hafa endað hringinn á -2 höggum undir pari.

 Birgir Leifur á rástíma á morgun klukkan 9:00 að íslenskum tíma og byrjar þá á 1. teig en hóf leik af 10. teig í morgun.