Birgir Leifur Hafþórsson hélt uppteknum hætti á þriðja keppnisdegi 2. stigs úrtökumóts Evrópumótaraðarinnar í dag og er í sjöunda sæti fyrir fjórða og síðasta daginn.
Birgir lék á 71 höggi í dag eða á 1 einu höggi undir pari og er hann samtals á fimm undir pari á mótinu. Birgir hefur leik klukkan 9:20 í fyrramálið og nú er um að gera að krossleggja fingur og senda góða strauma til kappans og vona að hann tryggi sig inn á síðasta stig úrtökumóts Evrópumótaraðarinnar!