Birgir Leifur náði ekki að fylgja eftir góðu gengi undanfarna 2 daga þegar hann lékk 3, hringinn á lokamóti úrtökumóta evrópumótaraðarinnar. Hann lék á +3 höggum yfir pari í dag á samtals 75 höggum.

Hann er núna í 34.-41 sæti. Birgir Leifur fékk 4 skolla, 1 fugl og 13 pör í dag.

Birgir á rástíma á morgun klukkan 10:40 á Nýja vellinum og hefur leik á 1. teig. með sömu mönnum og í dag. Það er vonandi að hann nái að sýna sömu góðu spilamennskuna og fyrstu 2 hringina sem hann spilaði einmitt á Nýja vellinum. Birgir þarf að vera á meðal 70 efstu mönnum til þess að komast áfram í gegn um niðurskurð og eiga kost á að bæta stöðu sína enn frekar.