Á morgun fimmtudag mun Birgir Leifur hefja leik á öðru móti sínu í Suður-Afríku. Það er Soth African Airways Open mótið sem fer fram á Humewood Golf club í Port Elisabeth. Mótið er liður í Evrópumótaröðinni.

Birgir Leifur á rástíma klukkan 6:30 að staðartíma eða klukkan 4:30 að íslenskum tíma. Hann spilar fyrstu 2 dagana með englendingunum James Heath og Lee S. James. Þeir munu hefja leik sem fyrsta holl á 10. teig á morgun.

Bein útsending verður frá mótinu á Sýn og hefst útsending klukkan 12:10 bæði fimmtudag og föstudag. Birgir mun hefja leik seinna á föstudeginum og verður því vonandi að spila meðan á útsendingu stendur á föstudeginum. Hann verður hinsvegar á búinn að ljúka leik þegar útsending hefst á fimmtudeginum.

Birgir Leifur heldur síðan heim til Íslands að mótinu loknu og verður hér á landi yfir hátíðarnar. Við óskum Birgi að sjálfsögðu góðs gengis á mótinu.