Birgir Leifur lék á -2 höggum undir pari á þriðja degi South African Airways Open golfmótinu sem er liður á Evrópumótaröðinn. Mótið fer fram á Humewood vellinum í Port Elisabeth í Suður-Afríku og lýkur á morgun.
Birgir Leifur náði að bæta stöðu sína frá því í gær. Hann lék á samtals 70 höggum í dag fékk 3 fugla, einn skolla og 14 pör. Hann er sem stendur í 52. sæti ásamt 13 öðrum kylfingum. Carl Suneson sem lék með Birgi í dag er án efa hástökkvari dagsins. Hann lék hringinn á 65 höggum og er í 11. sæti. Phillip Archer sem lék einnig með Birgi Leifi í dag lék á 69 höggum og er á -4 höggum undir pari eftir hringinn í dag.