Fyrsti hringurinn hjá Ottó Sigurðssyni í sínu öðru atvinnumannamóti var ekki alveg að ganga upp í dag. Ottó hóf leik í morgun klukkan rúmlega 9 og lék á 84 höggum eða +12 höggum yfir pari vallarins.

 Ottó fékk aðeins 7 pör á hringnum, tíu skolla og einn skramba. Hann hitti einungis 5 brautir og auk þess einungis 4 flatir og var með 32 pútt. Þetta hefur því verið barningur fyrir okkar mann í dag og vonandi að það gangi betur hjá honum á morgun á öðrum keppnisdegi Backtee Open II mótsins.