Næstkomandi laugardag er loka mót ársins, Bændaglíman.
Leikinn verður hinn landsfrægi Vífilstaðascramble sem er fjögurra manna scramble, með skemmtilegu ívafi.
Ræst verður út af öllum teigum kl. 13:00 og mæting ekki síðar en 12:30. Kverkarnar verða vættar og að leik loknum verður boðið upp á glæsilega veislu að hætti veitingamannsins.
Þetta árið verður skipt í lið eftir bæjarfélgögunum Kópavogur / Garðabær. Þeir sem ekki búa í þessum bæjarfélögum verður skipt á liðin. Nú er um að gera að koma og vera með og sína bændum stuðning.
Skráning á www.golf.is eða í rástímaskráningu í síma 897 7773