Frá og með laugardeginum 3. október eru vellir GKG eingöngu opnir fyrir félagsmenn. Verslunin og rástímaskráningunni hefur verið lokað og eins veitingaaðsöðunni í skálanum. Við viljum þakka öllum kylfingum fyrir gott golfsumar og óskum þeim alls hins besta í vetur.
Við viljum benda félögum á kynna sér opnunartíma valla en þeir verða t.d. báðir lokaðir til hádegis helgina 3 og 4 október, við viljum þó benda á að félagar geta leikið Mýrina á vetrarteigum og inn á vetrarflatir.
Einnig viljum við hvetja félaga til að ganga vel um vellina en þeir eru mjög viðkvæmir núna og passa upp á að gera við boltaför og kylfuför.
Skrifstofan verður opin virka daga á venjubundnum opnunartíma.
Með þökk fyrir sumarið
Starfsfólk GKG