Í gær 5. janúar fór fram val á Íþróttakonu og karli Kópavogs fyrir árið 2009. Alfreð Finnbogason, knattspyrnumaður úr Breiðabliki, og Erna Björk Sigurðardóttir, knattspyrnukona úr Breiðabliki urðu fyrir valinu.

 

Sigmundur Einar Másson fékk viðurkenningu í flokki 17 ára og eldri, en Ragnar Már Garðarsson og Særós Eva Óskarsdóttir fengu viðurkenningar í flokki 13-16 ára. Sigmundur fékk auk þess 100.000 kr. styrk úr afrekssjóði ÍTK. GKG óskar þeim til hamingju með viðurkenningarnar.