Félagar athugið.
Nú hefur verið gengið frá innheimtumálum fyrir árið 2010 og ættu greiðsluseðlar að berast félagsmönnum í næstu viku. Innheimtan verður með sama sniði og verið hefur undanfarin ár og sér Kreditkort hf. um innheimtuna fyrir klúbbinn. Með greiðsluseðlinum fylgir bæklingur þar sem útlistað er hvaða möguleikar eru í boði fyrir þá sem vilja skipta greiðslum.
Félagsskírteini verða síðan prentuð í byrjun aprílmánaðar og munum við tilkynna á vef okkar þegar skírteinin eru tilbúin til afhendingar. Athugið að félagsskírteini verða eins og í fyrra afhent hér í kúbbnum en ekki send í pósti.
Kveðja
Ólafur E. Ólafsson