Nú á laugardaginn 6. febrúar hefst í Kórnum púttmótaröð til styrktar afrekskylfingum GKG. Um er að ræða 6 mót sem haldin verða næstu sex laugardag. Mótin hefjast kl. 11 og standa til kl 14 og er öllum heimil þáttaka. Verð fyrir þáttöku er aðeins kr. 500.- og er heimilt að kaupa fleirri en einn hring, en þó með þeim skilyrðum að aðeins er hægt að nota einn hring í hverju móti. Allur afrakstur þessara móta gengur ósnertur til afrekskylfinga GKG en þeir stefna á æfingaferð erlendis í vor.
Nú er bara að drífa sig og mæta, æfa púttin og styrkja um leið okkar frábæra afreksfólk.