Næstkomandi þriðjudag, þann 20. apríl, verður hinn árlegi félagsfundur GKG haldinn í golfskálanum v/ Vífilstaðaveg.  Hefst fundurinn kl. 20:00 og stendur eitthvað fram eftir kvöldi.

Eins og venjan er þegar félagsfundur að vori er haldinn verður farið yfir stöðu mála hjá klúbbnum.  Guðmundur vallarstjóri mun einnig fara yfir vallarmálin, framkvæmdir í vetur og horfur fyrir sumarið.  Við hvetjum félagsmenn GKG til að mæta á fundinn, sýna sig og sjá aðra og leggja drög að komandi golfsumri.

Stjórn og starfsfólk GKG