Nú styttist í að nýliðanámskeiðin hefjist og eru þau ætluð ætluð nýjum félögum sem eru að stíga fyrstu skrefin í golfinu og hafa ekki fengið forgjöf. Nýjir félagar sem koma úr öðrum klúbbum og hafa fengið forgjöf eða áður tekið þátt á nýliðanámskeiði á vegum golfklúbbs, þurfa ekki að taka námskeiðið. Gjald per þátttakanda er kr. 6.000 og er innifalið í því tæknikennsla, spilkennsla og reglufræðsla samkvæmt neðangreindu skipulagi, auk námskeiðsgagna.

Eftirfarandi dagssetningar eru í boði, og er hámarksfjöldi á hverju námskeiði 16 manns.

Hópur 1 Dags. Tími Mæting Kennarar
Sveifla og stutta spil 11.maí 17 – 19 GKG skáli Úlfar og Haraldur
Spilkennsla 13.maí 17 – 18:30 GKG skáli Úlfar og Derrick
Reglufundur 19.maí 20 – 22 GKG skáli Kjartan

 

Hópur 2 Dags. Tími Mæting Kennarar
Sveifla og stutta spil 18.maí 17 – 19 GKG skáli Úlfar og Haraldur
Reglufundur 19.maí 20 – 22 GKG skáli Kjartan
Spilkennsla 20.maí 17 – 18:30 GKG skáli Úlfar og Derrick

 

Hópur 3 Dags. Tími Mæting Kennarar
Sveifla og stutta spil 8.júní 17 – 19 GKG skáli Derrick og Haraldur
Reglufundur 9.júní 20 – 22 GKG skáli Kjartan
Spilkennsla 10.júní 17 – 18:30 GKG skáli Derrick og Haraldur

Þjálfarar klúbbsins, Úlfar Jónsson, Derrick Moore og Haraldur Þórðarson sjá um námskeiðin. Kjartan Bjarnason, Yfirdómari GKG og Landsdómari sér um regluhluta námskeiðsins.

Skráning fer fram á heimasíðu GKG, undir flipanum Nýliðar, en hægt er að skrá sig með því að senda póst á netfangið ulfar@gkg.is eða með því að hafa samband við skrifstofu GKG 565 7037, gkg@gkg.is eða Úlfar Jónsson S: 862 9204, ulfar@gkg.is.