Lokamót GKG kvenna verður laugardaginn 4. september nk. og hefst kl. 09:00 og lokaskráning er kl. 13:00. Leiknar verða 18 holur á Leirdalnum. Leikfyrirkomulagið verður punktakeppni með fullri forgjöf.
Skráning fer fram á golf.is og lýkur föstudaginn 3. september nk. kl. 16:00.
Í mótslok verður lokahóf GKG kvenna og hefst matur kl. 19:30. Gert er ráð fyrir að þær konur sem taka þátt í lokamótinu komist heim til að skipta um föt fyrir lokahófið. Óskað er eftir skemmtiatriðum og æskilegt er að skemmtikraftar láti stjórnarkonur vita fyrir lokahófið. Lokahófið er fyrir allar konur í GKG.
Mótsgjald er kr. 1.500 og innifalið er mótsgjald og kvöldverður. Greitt er í veitingasölunni í golfskálanum við upphaf móts. Sama gjald er fyrir allar konur óháð því hvort að þær taki þátt í mótinu eða eingöngu kvöldverðinum. Þær konur sem eingöngu taka þátt í lokahófinu skulu skrá sig á sérlista í golfskálanum og greiða í veitingasölunni í golfskálanum við komu í lokahófið.
Veitt verða verðlaun fyrir efstu sætin í punktakeppni, næst holu á fjórum par 3 holum, 2. holu, 11. holu, 13. holu og 17. holu og verður boltinn að vera á flöt og lengsta brautarhögg á braut á 3. braut og verður boltinn að vera á braut. Einnig verða veitt verðlaun til þeirrar konu sem hefur fengið flesta punkta á 5 bestu 9 holum hennar í kvennagolfinu í sumar.
Konur í GKG fjölmennum laugardaginn 4. september nk. í kvöldverðinn og/eða mótið og skemmtum okkur saman.
Golfkveðjur kvennanefndin