Staðan eftir 3 umferðir-Undanúrslit
Nú er 8 manna úrslitum lokið og fyrir liggur hvaða fjórir kylfingar komust í undanúrslitin, sem leika skal á tímabilinu 15-31 ágúst.
Úrslitin í 8 manna úrslitunum urðu þannig:
Ragnar Geir Hilmarsson vann Stein Kára Ragnarsson 7/6
Ari Steinn Skarphéðinsson vann Gunnar Þór Helgason 1/0
Gunnlaugur Sigurðsson vann Einar Þorsteinsson 4/2
Halldór R Halldórsson vann Davíð Örn Kjartansson 5/4
Í undanúrsltunum, sem leika skal á tímabilinu 15. – 31. ágúst, leika því:
Ragnar Geir Hilmarsson gegn Ara Steini Skarphéðinssyni
Gunnlaugur Sigurðsson gegn Halldóri R. Halldórssyni
Þeir tveir, sem sigra sína leiki í undanúrslitunum, keppa um titilinn Holumeistari GKG árið 2011. Sá leikur mun fara fram í byrjun september.