Ný kvennanefnd hefur tekið til starfa og er skipuð framangreindum konum. Starf kvennanefndar sumarið 2012 verður með nokkuð hefðbundnum hætti. Kvennaklúbburinn verður með fasta golftíma alla þriðjudaga frá 22. maí til 4. sept., rástímar eru frá kl. 17:00 – 18:50. Í sumar munum við almennt leika 9 holur á þriðjudögum og leikum því í Mýrinni. Í mótum leikum við 18 holur og spilum við þá Leirdalinn að undanskildum mótunum 29. maí og 28. ágúst 2011. Konur skrá sig í þriðjudagstímana með því að senda tölvupóst á
gkg@gkg.is“>gkg@gkg.is
eða hringja í skálann til að skrá sig, s: 565-7373. Gæta verður að því að skrá kt., grunnforgjöf og vallarforgjöf. Hægt verður að skrá sig á miðvikudegi eftir hádegi til hádegis á leikdag (þriðjudag). Fjórar konur verða saman í holli og tvær skulu vera með grunnforgjöf að 28 og tvær yfir 28. Eins og áður er kvennanefndin með þessu að leitast við að samræma þrjú sjónarmið, þ.e. að konur ráði að einhverju marki með hverri þær spili, reynsla þeirra sem lengra eru komnar skili sér til þeirra sem eru styttra komnar og þá er einnig haft í huga mikilvægi þess að leikhraði okkar verði til fyrirmyndar.
Greitt er fyrir þátttöku í mótum á Vífilsstaðavellinum til m.a. að standa undir kostnaði við verðlaun fyrir árangur og verður gjaldið kr. 1.500, að undanskildu Sólstöðumótinu og mótsgjald á mótinu 31. maí verður kr. 1.000. Þá greiða GKGkonur ekki mótsgjald á Vífilsstaðavellinum í vinkvennamóti GKG- og GOkvenna. Við þurfum að greiða kr. 3.000 vallargjald á Urriðavelli þegar við förum þangað og þær greiða kr. 3.000 þegar að þær spila hjá okkur. Þátttökugjald í mótum í Mýrinni og í Leirdalnum verður unnt að greiða í gegnum heimabanka inn á reikning kvennaklúbbsins eða með peningum og verður það tilkynnt nánar fyrir hvert mót. Sami háttur verður með verðlaun á hatta- og kjólamótinu og síðast, þ.e. að hver kona komi með lítinn pakka að verðmæti um kr. 1.000. Sérstök athygli er vakin á því að óvissuferðin er nú á miðvikudegi þann 8. ágúst nk.
Móta- og skemmtidagskrá kvennaklúbbsins sumarið 2012:
Föstudaginn 11. maí Rauðvínskvöldið
Þriðjudaginn 22. maí Fyrsti golfleikdagur
Þriðjudaginn 29. maí 9 holu þriðjudagsmót
Þriðjudagurinn12. júní Vinkvennamót GO og GKG, Urriðavöllur
Þriðjudaginn 19. júní Vinkvennamót GKG og GO, Vífilsstaðavöllur
Föstudagskvöldið 22. júní Opið sólstöðumót kvenna
Þriðjudaginn 24. júlí 18 holu þriðjudagsmót
Miðvikudaginn 8. ágúst Óvissuferð
Þriðjudaginn 28. ágúst Hatta- og kjólamót
Sunnudaginn 9. september Lokamót kvennaklúbbsins
Fastir golftímar kvenna alla þriðjudaga kl. 17:00-18:50.
Í mótslok fyrirhugaðra móta verður verðlaunaafhending í skála. Lokamót verður sunnudaginn 9. september og verða þá afhent afreksverðlaun til þeirrar konu sem náð hefur flestum punktum yfir sumarið samkvæmt innlögðum skorkortum í skipulögðum leiktíma kvennaklúbbsins og framangreindum mótum. Til grundvallar eru lögð fimm bestu skorkortin á 9 holum. Munið að skila inn skorkortum í sérmerktan kassa kvennaklúbbsins með nafni, kt. og grunnforgjöf.
Við munum leitast við að koma fréttum úr starfinu á heimasíðu GKG og myndum á myndasíðu klúbbsins.
Við hefjum tímabilið með hinu árlega “Rauðvínskvöldi” kvennaklúbbsins og verður það eins og að framan greinir föstudaginn 11. maí í golfskálanum.
Kvennanefnd áskilur sér rétt til breytinga á ofanrituðu skipulagi ef nauðsyn krefur.
Með golfkveðju
Garðabæ 12. apríl 2012
f.h. kvennanefndar
Bergþóra Sigmundsdóttir
Sesselja Magnea Matthíasdóttir