Evrópukeppni klúbbliða lauk í dag á St. Sofia vellinum í Búlgaríu, og höfnuðu GKG sveit kvenna í 8. sæti. Stelpurnar náðu sér ekki almennilega á strik í dag og fóru úr 5. sætinu í það 8., þar sem þær léku á 154 höggum í dag, en fyrstu tvo á 144 og 143. Engu að síður mjög flottur árangur hjá stelpunum. Ingunn lék á 75 í dag en Ragna og Gunnhildur báðar á 79. Gunnhildur náði 11. sæti í einstaklingskeppninni sem er vel að verki staðið á 71-68-79, samtals 5 höggum yfir pari. Það var Daninn Nanna Madsen sem náði ótrúlega góðu skori -15, og sigraði í einstaklingskeppninni. Þetta er sjálfsagt nafn sem við munum sjá í fremstu röð atvinnukvenna. Danska liðið sigraði einnig með miklum yfirburðum, en þær léku samtals á 25 höggum undir pari.

Hægt er að skoða skor allra liða og keppenda hér.

Hér fyrir neðan má sjá skorkort GKG kvenna: