Aðalfundur GKG verður haldinn fimmtudaginn 28. nóvember kl 20:00 í Íþróttamiðstöð GKG.
Við vekjum athygli á því að á aðalfundinum er kosning stjórnar með eftirfarandi hætti:
Stjórn klúbbsins er skipuð 9 mönnum. Formaður skal kjörinn sérstakri kosningu til eins árs í senn. Þá skulu kosnir 4 meðstjórnendur til tveggja ára á hverjum aðalfundi.
Þeir aðilar sem hafa áhuga á að bjóða sig fram til stjórnarstarfa er vinsamlegast bent á að senda upplýsingar á gkg@gkg.is.
Að öðru leiti er dagskrá fundarins með eftirfarandi hætti:
- Fundarstjóri og fundarritari kosnir.
- Skýrsla stjórnar um störf og framkvæmdir á liðnu starfsári.
- Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til samþykkis.
- Rekstrar- og fjárfestingaáætlun komandi starfsárs kynnt.
- Lagabreytingar og aðrar tillögur skv. 8. gr. teknar til afgreiðslu.
- Kosning formanns til eins árs.
- Kosning fjögurra meðstjórnenda til tveggja ára
- Kosning endurskoðanda eða endurskoðendafélags. 9. Önnur mál.
Stjórn GKG