Mótið fer fram á Vífilsstaðavelli (ekki Leirdal) þar sem Leirdalsvöllurinn er enn ekki tilbúinn til notkunar þótt óðum styttist í þá stund.
Ræst verður út af öllum teigum samtímis klukkan 10:00. Hámarksfjöldi þátttakenda verður 120 manns. Leikin verður Stableford punktakeppni þar sem veitt er mest forgjöf 24 fyrir karla og 28 fyrir konur. Keppt verður í einum flokki þar sem allir kljást við alla.
Veitt verða verðlaun fyrir efstu 3 sætin í punktakeppni með forgjöf auk sérstakra verðlauna fyrir lægsta höggafjölda án forgjafar. Nándarverðlaun verða veitt á öllum par-3 brautum vallarins.
Allir þátttakendur fá rúnstykki og kaffi áður en leikur hefst.
Allir þátttakendur fá smá glaðning í teiggjöf.
Þátttökugjald er 2.000,- kr.
Skráning stendur yfir á golf.is